
Lögfræðiþjónusta og ráðgjöf

ÞJÓNUSTA
Borg lögfræðistofa veitir alhliða lögfræðiráðgjöf og þjónustu með áherslu
á fagmennsku, persónulega nálgun og lausnamiðuð vinnubrögð. Við vinnum náið með viðskiptavinum okkar til að tryggja gæðaþjónustu og áreiðanlega ráðgjöf. Lögfræðistofan sinnir margvíslegum lögfræðilegum verkefnum og veitir ráðgjöf til einstaklinga, félaga og fyrirtækja.
Ráðgjöf við stofnun og slit hjúskapar og sambúðar. Gerð kaupmála og sambúðarsamninga auk þeirra samninga sem liggja þurfa fyrir við skilnað, svo sem samninga um fjárskipti, forsjá barna og umgengi. Einnig sinnum við málum er varða faðerni og ættleiðingar.
Ráðgjöf og þjónusta tengd fasteignakaupum, fasteignaréttindum og gallamálum. Einnig bjóðum við upp á alhliða þjónusta við kaup og sölu fasteigna. Lögfræðingur fylgir viðskiptavinum frá upphafi til enda ferlisins. Sér um samskipti við fasteignasala og lánastofnanir auk þess að annast yfirferð skjala.
Ráðgjöf og aðstoð til einstaklinga og fyrirtækja í samskiptum við ríki og sveitarfélög. Til að mynda í tengslum við stjórnsýslukærur, leyfisveitingar og réttindamál.
Undirbúningur og gerð erfðaskráa, við veitum ráðgjöf við fyrirframgreiðslu arfs, aðstoðum við uppgjör á dánarbúum og leyfi til setu í óskiptu búi.
Fagleg gerð samninga sem sniðnir eru að fjölbreyttum þörfum einstaklinga og fyrirtækja. Við tryggjum að samningar séu skýrir og gildir að lögum.
Gerð samninga og skjala fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Við tryggjum faglega vinnslu skjala til að tryggja skýrleika og lagalega vernd.
Við veitum faglega aðstoð við gerð eignaskiptayfirlýsinga og veitum um ráðgjöf og aðstoð við stofnun og skráningu fasteigna.
Sérsniðin þjónusta fyrir húsfélög.
Svo sem innheimta húsfélagsgjalda, umsjón með fundum og gerð samninga við verktaka.

Starfsfólkið
Fagleg ráðgjöf, persónuleg þjónusta.
Borg lögfræðistofa veitir alhliða lögfræðiráðgjöf og þjónustu með áherslu á fagmennsku, persónulega nálgun og lausnamiðuð vinnubrögð. Við vinnum náið með viðskiptavinum okkar til að tryggja gæðaþjónustu og áreiðanlega ráðgjöf. Lögfræðistofan sinnir margvíslegum lögfræðilegum verkefnum og veitir ráðgjöf til einstaklinga, félaga og fyrirtækja. Lögfræðistofan er í samstarfi við lögmenn hjá Lögmönnum Fossvogi.

HAFA
SAMBAND
ALMENN FYRIRSPURN
Heimilisfang
Austurmörk 7
810 Hveragerði




